Friðarþing Skáta í Hörpu
Friðarþing Skáta var haldið í Hörpu helgina 12-14. október og var Æskan með kynningarbás þar. Margir áttu leið í Hörpu um helgina og stoppuðu yfir 200 manns við borðið hjá okkur. Ýmist gamlir félagar og svo fólk sem vildi heyra meira um okkar störf. Á básnum okkar kynntum við Æskuna barnahreyfingun IOGT, Núll prósent ungmennahreyfinguna og Bindindissamtökin IOGT með blöðrum, bæklingum og dagskrám.