Æskan Barnahreyfing IOGT á Íslandi

Fréttir

  1. Nýtt námskeið að hefjast

    Nýtt verkefni hefst 1ö Janúar hjá Æskunni
  2. Skráning er hafin

    Í dag hefs skráning í vetrarstarfið okkar.
    þetta verður frábær vetur á nýjum stað og hlökkum við til að hitta sem flest ykkar í haust :) - skráning fer fram í síma 511-1021 eða á netfanginu aeskan@iogt.is
  3. Afmælishátíð Æskunnar

    Æskan Barnahreyfing IOGT, var stofnuð þann 9. Mai 1886 og nú fögnum við 130 ára afmæli. Við ætlum að koma saman kl 15:00 í Brautarholtinu og hlusta á nokkrar sögur og jafnvel leikþætti.

  4. Jólaball Æskunnar og Komið og dansið

    Æskan ásamt Komið og dansið hélt jólaballi í Danshöllinni, Drafnarfelli 2 30. desember síðastliðinn og voru um eitt hundrað gestir sem höfðu mjög gaman
  5. Skráning að hefjast

    Skráning hefst í vetrarstarfið á Þriðjudaginn
  6. Skýjarölt Fréttatilkynning

    Fréttatilkynning

    Skýjarölt

    Undirbúningur er hafinn fyrir “Skýjarölt” sem verður á Laugarnestanga þann 22. ágúst næstkomandi 14:00 – 18:00 . Æskan barnahreyfing IOGT á Íslandi ásamt öðrum verður þar með flugdrekahátíð og skemmtun.

    Tilgangurinn með hátíðinni er að bjóða upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna og vekja athygli á félagsstarfi með börnum.

    Nánari upplýsingar: Olga sími: 852 5009

    https://www.facebook.com/Skyjarolt?fref=ts

  7. Flugdrekafestival

    Þann 16. ágúst ætlar Æskan Barnahreyfing að setja Flugdreka á flug á Laugarnestanga
  8. Afhending undirskrifta

    Arndís Jóna Gunnarsdóttir fulltrúi Barnahreyfingar IOGT á Íslandi afhenti í morgun Jóhönnu MaríuSigmundsdóttur undirskriftirnar sem söfnuðust á heimasíðu Allraheill, þar sem hún er yngst þingmanna og með skýra mynd um vernd barna og ungs fólks frá áfengisiðnaðinum.
  9. Hjólasöfnun Fréttatilkynning

    ​Fréttatilkynning 24. mars 2015
    Lumar þú á reiðhjóli í geymslunni? - Gefðu barni hjól og komdu hjólinu aftur í umferð –
    Miðvikudaginn 25. mars hefst árleg hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi sem unnin er í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT og Íslenska fjallahjólaklúbbinn. Þetta er í fjórða sinn sem Barnaheill standa fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga. Söfnunin stendur til 30. apríl 2015 og verður hjólum safnað á endurvinnslustöðvum Hringrásar og Sorpu á höfuðborgarsvæðinu og á pósthúsum á landsbyggðinni.
    Hjólin eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt er að sækja um hjól hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna. Hjólin verða afhent nýjum eigendum að loknum viðgerðum í maí.
    Sjálfboðaliðar gera hjólin upp undir styrkri stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum á vegum Íslenska fjallahjólaklúbbsins og Æskunnar, barnahreyfingar IOGT. Á facebook-síðu hjólasöfnunarinnar getur fólk fylgst með og skráð sig til þátttöku í viðgerðum.
  10. Alþjóðleg vika barna alkóhólista

     
    Æskan Barnahreyfing IOGT og Núll prósent eru hluti af ACTIVE og frá 8. til 14. febrúar minnir Active og aðildarfélög þess á alþjóðlega viku barna alkóhólista. Í Evrópu eru 9 milljón börn alkóhólista - börn og unglingar sem búa í fjölskyldum þar sem annar eða báðir foreldrar eru haldnir fíkn í áfengi. Mjög oft, taka þessi börn og unglingar upp hlutverk fullorðinna allt of snemma í lífi sínu, þeir lifa í fátækt eða finna fyrir útilokun í umhverfi sínu.
  11. Barnastarfið að hefjast

    Í dag hefst skráning í barnastarfið okkar

    endilega hnippið í þá sem eru í kringum ykkur

    skráningar sendast á aeskan@iogt.is

     

    https://www.facebook.com/pages/%C3%86skan-barnakl%C3%BAbbur/300170186855470

     

    http://www.aeskan.is/

     

    Fyrsti fundur vetrarins er nk. þriðjudag 7. október kl.17:00

  12. Reiðhjólasöfnun

    HJÓLASALA OG STÓRI VIÐGERÐARDAGURINN

    20. júní 2014 - 13:59:44

    Næstkomandi föstudag, 27. júní kl .12-16, standa Barnaheill – Save the Children á Íslandi fyrir hjólasölu á þeim hjólum sem ganga af í Hjólasöfnun samtakanna. 

    Söfnunin hefur gengið vel vel í ár og hafa nú þegar safnast um 300 hjól. Öll börn sem sótt hafa um fá hjól úr söfnuninni. 

    Á miðvikudaginn, 25. júní, verður Stóri viðgerðardagurinn haldinn í Síðumúla 35 kl. 16-18. Við auglýsum eftir handlögnum sjálfboðaliðum með verkfæri til að leggja okkur lið þá.

    Um leið og við óskum þeim börnum sem fá hjól úr söfnuninni til hamingju með hjólin, langar okkur að þakka ómetanlegt framlag sjálfboðaliða og sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum frá Æskunni, barnahreyfingu IOGT og Íslenska fjallahjólaklúbbnum - sem og Sorpu og Hringrás  sem söfnuðu hjólunum á endurvinnslustöðvum sínum.

    Verkefnið hlaut styrk úr Lýðheilsusjóði.

  13. Berj­ast gegn hat­ursorðræðu á net­inu

    Ung­mennaráð SAFT og SAMFÉS skora á fjöl­miðla sem hafa at­huga­semda­kerfi á síðum sín­um að hvetja not­end­ur til ábyrgr­ar notk­un­ar þeirra. Það má meðal ann­ars gera með því að hafa eft­ir­far­andi setn­ing­ar áber­andi í at­huga­semda­kerf­inu:

  14. LUMAR ÞÚ Á REIÐHJÓLI Í GEYMSLUNNI?

    LUMAR ÞÚ Á REIÐHJÓLI Í GEYMSLUNNI?

    - GEFÐU BARNI HJÓL OG KOMDU HJÓLINU AFTUR Í UMFERÐ -

    Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi er hafinn. Að þessu sinni er hún unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT og Íslenska fjallahjólaklúbbinn. Þetta er í þriðja sinn sem staðið er fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga, en söfnunin stendur til 15. júní 2014.

  15. HJÓLASÖFNUN BARNAHEILLA HEFST Á MÁNUDAG

    Mánudaginn 26. maí hefst hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Að þessu sinni er hún unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT og Íslenska fjallahjólaklúbbinn. Þetta er í þriðja sinn sem staðið er fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga, en söfnunin stendur til 15. júní 2014.

  16. Lokahóf

    Lokahóf Æskunnar verður í dag að Brautarholti 4a, þar sem við ætlum að koma saman, borða pizzu og spila bingó og kveðjum veturinn saman :)

    Hlökkum til að sjá sem flesta :)

  17. 9 milljón ástæður

    Börn alkóhólista vikan - 9 milljón ástæður að rífa niður ósýnilegar hindranir

    •  
    Children of Alcoholics Week - 9 million reasons to break through the invisible wall

    Kæru vinir,

    Það er sá tími ársins - Vika þar sem við fögnum degi elskenda og rifjum upp yndislegar minningar úr æsku okkar sem allir ættu að eiga og þyrftu ekki að berjast fyrir.

    Frá  9. til  15. febrúar  ætlum við sameinuð að beina kastljósi að viku barna alkóhólista. Til að sjá dagskránna fylgið þessum hlekk.

     
  18. COA vika

    Vikuna 9. til 15. febrúar viljum við draga fram í dagsljósið og beina athygli almennings á því að
    börn eiga ekki að þola að búa við misnotkun áfengis hjá foreldrum.
    Við þurfum öll að taka höndum saman og hjálpa foreldrum að búa börnum sínum öruggt umhverfi
    með því að draga úr neyslu.
     
    Barnastúkan Æskan ætlar á þriðjudaginn 11. febrúar kl: 17:00 að vera með opið hús og bjóða upp á listmálun.
  19. Barnastúkan Æskan á Rás eitt

    Guðbjörg Heiða Einarsdóttir og Baldur Heiðar Einarsson voru í viðtali við Lísu Páls á Rás eitt í gær og voru stúkunni til sóma.

    http://ruv.is/sarpurinn/flakk/21122013-0

  20. Hvít Jól

    Hvít Jól voru haldin í Brautarholti 4a í félagsmiðstöð IOGT á þriðjudaginn 10. desember þar sem ungmenni komu saman með börnum og fullorðnum og skáru út laufabrauð og steiktu. 

  21. Vímuvarnarvikan Vika 43

    Vímuvarnavikan er handan við hornið. 21. - 28. október. IOGT hefur frá upphafi verið virkur þátttakandi í vikunni og lætur ekki sitt eftir liggja að þessu sinni. Heilmikil dagskrá verður á vegum IOGT tengt vikunni til að minna á nauðsyn forvarna. Félagar IOGT verða mikið á ferðinni til að kynna verkefnin og það sem er í boði í vímulausu starfi IOGT. Fylgist með á heimasíðunni www.iogt.is og á facebook slóðinni https://www.facebook.com/IogtAIslandi.
  22. Skráning í starfið hefst 24, Sept

    Skránig í Barnastarf IOGT hefst þriðjudaginn 24, September. Húsið verður opið frá klukkan 17:00 og 18:00 - Hlökkum til að sjá sem flesta í Brautarholti 4a

  23. 17.júní Brautarholti 4a

    Karnival stemning verður í Garðinum á bakvið Brautarholt 4a þar sem krakkarnir úr Núll prósent og Æskunni halda uppi fjörinu. Dagskráin verður auglýst nánar síðar.

  24. Trampolínið komið upp

    Svanur Aðalsteinsson félagi í Æskunni og stúkunni Einingunni nr. 14 setti upp trampolínið í garðinum í góða veðrinu í gær.

  25. Æskan þrífur Laugarnestangann

    Þriðjudaginn 9. apríl sinntu krakkar úr IOGT, Æskunni og Núll prósent  umhverfisverkefni á Lauganestanganum í Reykjavík. Hist var við listasafn Sigurjóns Ólafssonar http://lso.is/ klukkan 17:00 og var tekið til hendinni til 18:00. Margir svartir plastpokar voru fylltir með rusli og safnað saman. Hverfastöð Reykjavíkurborgar lánaði okkur spjót og gaf okkur ruslapoka og þökkum við þeim kærlega fyrir.

  26. Hin ótrúlega gleði æskunnar

    Við kynnum með gleði á facebook síðu og heimasíðu okkar ljósmyndasamkeppni fyrir ungt fólk. Hér er skýring hvers vegna, hvernig og hvenær þú ættir að taka þátt!

  27. grímuskemmtun

    Grímuskemmtun verður hjá Æskunni 12. febrúar 17:00 í Brautarholtinu.

  28. Hvít Jól á götum og torgum

    Krakkar úr Æskunni fóru í Glæsibæ í gær og gáfu piparkökur

  29. Jóladagatal Saman hópsinsa

    Endilega takið virkan þátt í jóladagatali Samanhópsins sem birtir margar góðar hugmyndir um það sem gaman er að gera saman í desember.

  30. Alþjóðadagur barna 2012

    Í gær, á alþjóðadegi barnsins, gaf Evrópuráðið út heimildarmynd um viðbrögð við kynferðisofbeldi á börnum þar sem íslenska Barnahúsið er þungamiðja umfjöllunarinnar

  31. Alþjóðadagur barna 2012

    Þann 20 nóv verður Æskan Barnahreyfing IOGT með opið hús fyrir börn 6-14 ára frá klukkan 13-18 þar býðst börnum að koma og sjá mynd, baka, lita og leika
    Við viljum sjá þig og vini þína.
    Komdu - kíktu - upplifðu
  32. Friðarþing Skáta í Hörpu

    Friðarþing Skáta var haldið í Hörpu helgina 12-14. október og var Æskan með kynningarbás

  33. Fyrsti fundurinn í vetur

    Mikil tilhlökkun ríkir í Brautarholtinu þar sem að fyrsti fundur vetrarins er að hefjast síðar í dag