Æskan Barnahreyfing IOGT á Íslandi

Fréttir

Æskan Tekur þátt í viku 43.

Æskan er með í viku 43, vímuvarnavikunni, www.vvv.is. Að vikunni stendur Samstarfsráð í forvörnum, SAMFO, í samvinnu með 20 öðrum frjálsum félagasamtökum. Æskan verður sérstaklega opið hús þriðjudaginn 23. október. Hreyfingin er opin börnum á aldrinum 6-14 ára sem vilja koma saman í vímulausu umhverfi og hafa gaman. Formaður Æskunnar, Sigurbjörg Helga Sigurgeirsdóttir fór á undirbúningsfund í gær til þess að skipuleggja vikuna. Fulltrúar aðildarfélaga koma og leggja lið eins og þeir hafa tök á en sú vinna er framlag félagasamtakanna sem standa að vikunni. Rætt var um nálgun fyrir vikuna og var ákveðið að ávarpa áhrif óbeinnar áfengisneyslu. Æskan mun með aðstoð IOGT halda vel á spöðunum fyrir börnin þessa vikuna sem og aðrar og hvetur sem flesta til að taka þátt í vikunni með okkur.