Jóladagatal Saman hópsinsa
Endilega takið virkan þátt í jóladagatali Samanhópsins sem birtir margar góðar hugmyndir um það sem gaman er að gera saman í desember.
Saman hópurinn er samsettur úr fulltrúum frá félögum og stofnunum sem koma víða að.
Hópurinn vinnur að því að vekja athygli á þeirri ógn sem börnum og unglingum stafar af vegna útbreiðslu áfengis og vímuefna í samfélaginu, beina athygli foreldra að ábyrgð þeirra á uppeldi barna sinna og hvetja til jákvæðra samskipta fjölskyldunnar. Skilaboðum hefur verið komið á framfæri í fjölmiðlum, með umræðum og auglýsingum. Hópurinn leggur áherslu á að starf hans skili sér til allrar landsbyggðarinnar.