Æskan þrífur Laugarnestangann
Þriðjudaginn 9. apríl sinntu krakkar úr IOGT, Æskunni og Núll prósent umhverfisverkefni á Lauganestanganum í Reykjavík. Hist var við listasafn Sigurjóns Ólafssonar http://lso.is/ klukkan 17:00 og var tekið til hendinni til 18:00. Margir svartir plastpokar voru fylltir með rusli og safnað saman. Hverfastöð Reykjavíkurborgar lánaði okkur spjót og gaf okkur ruslapoka og þökkum við þeim kærlega fyrir.