Trampolínið komið upp
Svanur Aðalsteinsson félagi í Æskunni og stúkunni Einingunni nr. 14 setti upp trampolínið í garðinum í góða veðrinu í gær. Trampolínið gaf Signý Aðalsteinsdóttir félagi úr Æskunni og Einingunni nr. 14 vorið 2011 til að fleiri gætu notið þess að hoppa og skoppa og fá þannig heilbrigða útrás. Krakkarnir í Æskunni og Núll prósent koma til með að nota trampolínið óhóflega í sumar eins og síðustu ár.