Vímuvarnavikan er handan við hornið. 21. - 28. október. IOGT hefur frá upphafi verið virkur þátttakandi í vikunni og lætur ekki sitt eftir liggja að þessu sinni. Heilmikil dagskrá verður á vegum IOGT tengt vikunni til að minna á nauðsyn forvarna. Félagar IOGT verða mikið á ferðinni til að kynna verkefnin og það sem er í boði í vímulausu starfi IOGT. Fylgist með á heimasíðunni www.iogt.is og á facebook slóðinni https://www.facebook.com/IogtAIslandi.