Æskan Barnahreyfing IOGT á Íslandi

Fréttir

Hvít Jól

Hvít Jól voru haldin í Brautarholti 4a í félagsmiðstöð IOGT á þriðjudaginn 10. desember þar sem ungmenni komu saman með börnum og fullorðnum og skáru út laufabrauð og steiktu. Aðstaðan í félagsheimilinu er mjög góð fyrir mannfagnaði og allskyns viðburði. Guðjón Þór Guðlaugsson í Núll prósent átti hugmyndina sem var gripinn á lofti og kallað á krakkana í Æskunni og fjárfest í flottum potti og skurðarbrettum, hnífum, steikingarfeiti, mandarínum, eplum og komu nokkrir með laufabrauðsjárn með sér. Stemningin var góð frá byrjun þó að fæstir hafi komið nálægt laufabrauðsgerð áður. Nokkrir voru þó sem vissu nákvæmlega hvað átti að gera enda löng hefð í þeirra fjölskyldum að hittast á góðri stund og skera laufabrauð. Lísa Pálsdóttir útvarpskona á rás 1 kom og tók viðtal við nokkra þar sem að hún var á ferðinni og þótti börnunum í barnastúkunni Æskunni það skemmtilegt. Líklegt er að þessi viðburður verði aftur að ári og jafnvel fjölmennari.