Leikskóla stúlka gaf hjólið sitt
Matthildur Eggertsdóttir, fjögurra ára leikskólastúlka, setti hjólasöfnun Barnaheilla formlega af stað í Sorpu í dag og gaf hjólið sitt í söfnunina. Þetta er í þriðja sinn sem Barnaheill standa fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga. Söfnunin stendur til 15. júní og verður hjólum safnað á endurvinnslustöðvum Hringrásar og Sorpu á höfuðborgarsvæðinu.
Hjólin eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt er að sækja um hjól hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Lið sjálfboðaliða gerir hjólin upp undir styrkri stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum. Söfnunin er að þessu sinni unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT og Íslenska fjallahjólaklúbbinn.
Hægt er að fylgjast með hjólasöfnuninni á Facebook-síðu hennar þar sem fólk getur einnig skráð sig til þátttöku í viðgerðum.