Berjast gegn hatursorðræðu á netinu
Ungmennaráð SAFT og SAMFÉS skora á fjölmiðla sem hafa athugasemdakerfi á síðum sínum að hvetja notendur til ábyrgrar notkunar þeirra. Það má meðal annars gera með því að hafa eftirfarandi setningar áberandi í athugasemdakerfinu:
1. „Það sem þú gerir á netinu endurspeglar hver þú ert. Hugsaðu áður en þú setur á netið. Orðum fylgir ábyrgð!“ #Ekkerthatur
2. „Hugsaðu áður en þú deilir. Gjörðir á netinu hafa afleiðingar á raunverulegt fólk. Orðum fylgir ábyrgð!“ #Ekkerthatur
3. „Enginn má birta meiðandi myndir eða ummæli um aðra. Það sem birt er á netinu verður ekki tekið til baka. Orðum fylgir ábyrgð!“ #Ekkerthatur
4. „Hugsaðu áður þú birtir. Orðum fylgir ábyrgð!“ #Ekkerthatur
5. „Það sem þú gerir á netinu getur komið í bakið á þér síðar. Orðum fylgir ábyrgð!“ #Ekkerthatur
Setningarnar eru samdar í tengslum við verkefnið Ekkert hatur –orðum fylgir ábyrgð, átaksverkefni gegn hatursorðræðu á netinu sem ungmennin í SAFT og SAMFÉS hafa tekið virkan þátt í.
Í fréttatilkynningu segir að hópur stofnana og samtaka á Íslandi standi á bak við átakið og er það hluti af verkefni Evrópuráðsins sem ber heitið No Hate Speech Movement. Fyrir hönd menntamálaráðuneytisins annast SAFT, Heimili og skóli – Landssamtök foreldra, SAMFÉS, Landssamband æskulýðsfélaga, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Æskulýðsvettvangurinn útfærslu verkefnisins á Íslandi.
Hópurinn fundaði í dag ásamt fulltrúum ungmennaráðanna og formönnum æskulýðssamtaka og samtökum sem vinna með börnum og ungmennum. Á fundinum var verkefnið kynnt og ungmennin sögðu frá vinnu sinni í tengslum við það. Aðstandendur verkefnisins hvetja alla til þess að kynna sér setningarnar og nota þær þegar þeir verða varir við ljótt orðbragð, einelti eða hatursáróður á netinu.