Æskan Barnahreyfing IOGT á Íslandi

Fréttir

Hjólasöfnun Fréttatilkynning

Fréttatilkynning 24. mars 2015
Lumar þú á reiðhjóli í geymslunni? - Gefðu barni hjól og komdu hjólinu aftur í umferð –
Miðvikudaginn 25. mars hefst árleg hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi sem unnin er í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT og Íslenska fjallahjólaklúbbinn. Þetta er í fjórða sinn sem Barnaheill standa fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga. Söfnunin stendur til 30. apríl 2015 og verður hjólum safnað á endurvinnslustöðvum Hringrásar og Sorpu á höfuðborgarsvæðinu og á pósthúsum á landsbyggðinni.
Hjólin eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt er að sækja um hjól hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna. Hjólin verða afhent nýjum eigendum að loknum viðgerðum í maí.
Sjálfboðaliðar gera hjólin upp undir styrkri stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum á vegum Íslenska fjallahjólaklúbbsins og Æskunnar, barnahreyfingar IOGT. Á facebook-síðu hjólasöfnunarinnar getur fólk fylgst með og skráð sig til þátttöku í viðgerðum.
Frá upphafi Hjólasöfnunarinnar árið 2012 hafa hundruð barna notið góðs af því að fá hjól úr söfnuninni.
Hjólunum verður safnað á eftirfarandi stöðum:
 Hringrás - Klettagörðum í Reykjavík
 Sorpu – Dalvegi í Kópavogi, Breiðhellu í Hafnarfirði, Sævarhöfða, Ánanaustum og Jafnaseli í Reykjavík og Blíðubakka í Mosfellsbæ.
Nánari upplýsingar veita Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi erna@barnaheill.is í síma 820 7255 og Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri hjólasöfnunarinnar thora@barnaheill.is í síma 698 1976

Fréttatilkynning í PDF