Æskan Barnahreyfing IOGT á Íslandi

Fréttir

Jólaball Æskunnar og Komið og dansið

Æskan ásamt Komið og dansið hélt jólaballi í Danshöllinni, Drafnarfelli 2 30. desember síðastliðinn og voru um eitt hundrað gestir sem höfðu mjög gaman. Dansað var í kringum jólatréð með undirspili og söng þar sem allir tóku vel undir. Þyrnirós, jólasveinar einn og átta, Adam átti syni sjö, upp á stól, nú er Gunna á nýja kjólnum og miklu fleiri söngvar voru sungnir. Jólasveinninn Hurðarskellir kom í heimsókn og skemmti öllum með sögum af þægum krökkum og óþægum foreldrum sem fengu kartöflu í skóinn. Góður rómur var gerður að viðburðinum og óskað eftir að jólaball yrði haldið næstu jól.